Vefverslun
Karfa
0 hlutir í körfu
Verðvernd BYKO
TRYGGJUM LÆGRA VERÐ!

Við í BYKO viljum ávallt vera í fararbroddi og leitum stöðugt nýrra leiða til að bæta þjónustu við viðskiptavini okkar enn frekar. Þess vegna erum við afar stolt af því að bjóða þér nú VERÐVERND BYKO, sem tryggir þér lægra verð á gæðavörum og gott betur!

VERÐVERND BYKO þýðir að ef þú kaupir vöru hjá okkur og sérð sömu eða sambærilega vöru auglýsta ódýrari annars staðar, innan 20 daga, endurgreiðum við þér mismuninn og 20% af honum að auki! Njóttu vel.

BYKO TRYGGIR viðskiptavinum sínum sama eða lægra verð en samkeppnisaðilar, selji og auglýsi þeir sömu eða alveg sambærilega vöru.

SAMA VARA, merkir að um sama vörumerki og vörunúmer frá framleiðanda sé að ræða. Varan þarf að vera til á lager hjá samkeppnisaðila á Íslandi.

SAMBÆRILEG VARA, þarf að vera gædd sömu eiginleikum, gæðum (gæðastöðlum), stærð, þyngdar, þykktar eða hvers annars sem við á. Komi upp vafamál mun BYKO (starfsmaður/verslunarstjóri) úrskurða um hvort um sambærilega vöru sé að ræða eða ekki.

VERÐVERND nær yfir auglýst verð eða auglýst verðtilboð frá samkeppnisaðilum.

20 DAGA VERÐVERND. Finni viðskiptavinur BYKO ódýrari vöru hjá samkeppnisaðila en þá sem hann keypti í BYKO, innan 20 daga frá því kaupin voru gerð, endurgreiðir BYKO mismuninn og 20% af honum að auki. Kaupanda ber að sanna að ekki sé liðinn lengri tími en 20 dagar frá kaupum, ætli hann sér að sækja endurgreiðslu, með t.d. kvittun.

SAMKEPPNISAÐILAR eru verslanir á íslenska heimilis- og byggingavörumarkaðnum.

VERÐVERND GILDIR EKKI: Verðverndin nær ekki yfir sérstakar útsölur, rýmingarsölur, 2 fyrir 1 tilboð (o.þ.h.), útsölur á gölluðum vörum, vörum í takmörkuðu magni og prentvillum á tilboðum frá samkeppnisaðilum. Þá nær hún ekki yfir vöru sem boðin er til sölu notuð. Tímarit og matvæli (svo sem gos, samlokur og sælgæti) eru undaskilin verðvernd BYKO.

LÁGT VERÐ Á ÖLLUM VÖRUM. Skiljanlega er ekki hægt að bjóða verðvernd á vörum sem einungis fást hjá BYKO og eru sannarlega ekki sambærilegar við vörur sem seldar eru hjá samkeppnisaðilum hér á landi. BYKO mun þó kappkosta við að bjóða allar vörur á samkeppnishæfu verði.

ENDANLEGT VERÐ. Miða verður við endanlegt verð sem greitt er fyrir vöruna hjá BYKO.

Verðkannanir. Í hverri viku gera starfsmenn okkar verðkannanir hjá samkeppnisaðilum. Með þessu leggjum við okkur fram um að bjóða lægsta verðið. Samt sem áður hvetjum við þig til þess að gera þinn eiginn samanburð því að ef þú finnur vöruna auglýsta ódýrari annars staðar innan 20 daga frá dagsetningu nótu þá endurgreiðum við þér mismuninn, og ekki nóg með það heldur greiðum við þér 20% af mismuninum að auki.


© BYKO 2009 | Skiptiborð BYKO : 515-4000 | Þjónustudeild: thjonusta@byko.is