Karfa
0 hlutir í körfu
UM BYKO
BYKO rekur stærstu byggingavöruverslun landsins í Breiddinni í Kópavogi, auk 7 annarra verslana á höfuðborgarsvæðinu og víða um land. Undir rekstur BYKO heyra einnig fyrirtækin ELKO, Intersport og Húsgagnahöllin. 
Saga BYKO hófst árið 1962 þegar Guðmundur H. Jónsson og Hjalti Bjarnason opnuðu fyrstu BYKO verslunina við Kársnesbraut í Kópavogi. Frá upphafi kappkostuðu félagarnir að veita viðskiptavinum sínum, fagmönnum jafnt sem almennum húsbyggjendum, framúrskarandi þjónustu. Þessi gildi frumkvöðlanna lögðu grunninn að uppbyggingu fyrirtækisins sem nú er leiðandi í sölu á byggingavörum hér á landi.
Stjórnendur og starfsfólk BYKO leggur mikla áherslu á að styrkja starfsemina og bæta þjónustuna við viðskiptavini sína. Á síðari árum hefur BYKO haslað sér völl erlendis, meðal annars með uppbyggingu á öflugu timburfyrirtæki í Lettlandi. Þar er framleitt timbur og ýmsar timburafurðir sem tryggja viðskiptavinum BYKO hagstæðara timburverð en áður þekktist.
BYKO er hluti af eignarhaldsfélaginu NORVIK.
Iðunn Jónsdóttir er stjórnarformaður BYKO en eftirfarandi aðilar eru í framkvæmdastjórn fyrirtækisins:

 Sigurður E. Ragnarsson

 Forstjóri

 Brynja Halldórsdóttir

 Framkvæmdastjóri Norvíkur

 Eggert Kristinsson

 Framkvæmdastjóri verslunarsviðs

 Pétur Andrésson

 Framkvæmdastjóri innkaupasviðs

 Steingrímur B. Björnsson

 Framkvæmdastjóri byggingasviðs


© BYKO 2009 | Skiptiborð BYKO : 515-4000 | Þjónustudeild: thjonusta@byko.is