Viðskiptakort BYKO veitir viðskiptamönnum 10% staðgreiðluafslátt af vörum utan tilboða í öllum verslunum BYKO.
Sé greitt með greiðslukorti falla 3% niður.
Hægt er að sækja um viðskiptakort BYKO í öllum útibúum og hjá viðskiptaráðgjöf og með því að smella á viðskiptakortið á forsíðu heimasíðunnar.
Starfsmenn viðskiptaráðgjafar sjá um að taka nýja viðskiptamenn í reikningsviðskipti eða stofna til staðgreiðsluviðskipta sé þess óskað. Þeir upplýsa nýja viðskiptamenn um eðli reikningsviðskipta og hvaða skyldur fylgja slíkum viðskiptamáta.
Starfsmenn viðskiptaráðgjafar hafa með höndum umhald reikningsviðskipta og svara fyrirspurnum viðskiptamanna um reikninga, hreyfingar tímabila o.fl.
Á viðskiptaráðgjöfinni er hægt að fá upplýsingar um þá lánamöguleika sem í boði eru hjá BYKO hverju sinni og hvaða skilyrði viðskiptamenn verða að uppfylla til þess að geta nýtt sér þá.
Starfsmenn viðskiptaráðgjafar sjá um innheimtu viðskiptaskulda, útskriftir ítrekunar og innheimtubréfa.
Starfsmenn viðskiptaráðgjafar eru:
Guðm.Helgi Ólafsson Netfang: gho@norvik.is Sími: 458 1176
Valmundur Ingi Pálsson Netfang: vip@norvik.is Sími: 458 1172
Sigurður Steinarsson Netfang: siggis@norvik.is Sími: 458 1170
Gunnlaugur Vésteinsson Netfang: gunnlaugurv@norvik.is Sími: 458 1108
Hefðbundin reikningsviðskipti hjá BYKO skiptist í tvo flokka. Annarsvegar mánaðarleg viðskipti og hinsvegar reikningslán.
Til þess að stofna til reikningsviðskipta geta viðskiptamenn valið um að mæta í eitt af útibúum okkar, mætt til viðskiptaráðgjafa á Bíldshöfða 20.(efstu hæð í Húsgagnahöll) eða nálgast umsóknareyðublöð og ábyrgðaryfirlýsingu hér að neðan.
Viðskiptaráðgjöf metur hæfi umsækjenda hverju sinni.
Fyirtæki sem sækja um reikningsviðskipti þurfa að skila inn tryggingum.(sjá tryggingar hér að neðan)
Umsóknareyðublað - UMSÓKN UM REIKNINGSVIÐSKIPTI
Eyðublað fyrir ÁBYRGÐARYFIRLÝSINGU
Þegar um reikningslán er að ræða þá lánar BYKO viðskiptamanni til lengri tíma en eins mánaðar. Oft er um að ræða að viðskiptamaður þarf fyrirgreiðslu fram að fokheldi eða öðrum þeim tímapunkti að lán eða greiðslur koma inn á framkvæmd. Sé þessa fyrirkomulags óskað þá er það skoðað sérstaklega með tilliti til þess hvort tryggingar þurfi að koma til og með hvaða hætti þær þurfa að vera.
Til þess að dreifa viðskiptaskuldum vegna vöruúttekta eru eftirfarandi möguleikar í boði.
· Víxlar sem eru að hámarki til tveggja mánaða.
· Staðgreiðslulán Visa og Euro
· Skuldabréf BYKO að hámarki til 24.mánaða. Skilyrði er tveir ábyrgðarmenn sem eru fasteignaeigendur og/eða veðtrygging eða aðrar þær tryggingar sem BYKO metur.
· Ábyrgðarmenn þurfa að vera fasteignaeigendur og ekki á vanskilaskrám.
Reikningsviðskipti í formi mánaðarlegra viðskipta eða reikningsláns byggjast á gagnkvæmu trausti þeirra sem að standa. Engu að síður er oft um það háar lánsfjárhæðir að ræða að BYKO hf. fer fram á tryggingar. Starfsmenn viðskiptaráðgjafar meta þetta hverju sinni. Helstu tryggingaform eru eftirfarandi:
· Tryggingabréf. Þá er fyrirfram ákveðinni fjárhæð þinglýst á fasteign fullbúinni eða á byggingarstigi til tryggingar skuldum viðskiptamanns gagnvart BYKO.
· Ábyrgðaryfirlýsing. Um er að ræða að einstaklingur/einstaklingar gangast í sjálfsskuldarábyrgð fyrir vöruúttektum viðskiptamanns oftast upp að einhverri fyrirfram ákveðinni upphæð. Slíka ábyrgðarmenn þarf að skoða eins og þá sem eru að sækja um reikningsviðskipti og skilyrði að þeir séu fasteignaeigendur.
· Bankaábyrgð. Viðskiptabanki viðskiptamanns tekst á hendur ábyrgð á vöruúttektum viðkomandi viðskiptamanns til ákveðins tíma. Greiðslu þarf að inna af hendi fyrir lok gildistíma ábyrgðar.
Aðgangur að þjónustuveri:
Viðskiptamenn bæði í staðgreiðslu og reikningsviðskiptum geta sótt um aðgengi að þjónustuveri BYKO þar sem þeir geta nálgast öll gögn er lúta að þeirra viðskiptum við fyrirtækið. Hægt er að sækja um aðgengi hjá viðskiptaráðgjöf í síma 515 4000 eða með því að senda póst á byko@byko.is.
Að neðan má sjá valmöguleika í þjónustuveri: