Leita
Innskráning
Sláðu inn símanúmer

Þjónusta

Ráðgjöf

Framkvæmdaráðgjöf

Framkvæmdaráðgjöf

Í samstarfi við Gísla Álfgeirsson hjá Heildstæðri Hönnun getum við verið þér innan handa frá upphafi framkvæmda og auðveldað þér þannig lífið. Gísli veitir alhliða ráðgjöf til einstaklinga varðandi allt sem þarf að hafa í huga í framkvæmdum.

Heildstæð hönnun - BYKO - Framkvæmdaráðgjöf
Gísli Álfgeirsson veitir framkvæmdaráðgjöf fyrir hönd BYKO
Dreymir þig um að fara í framkvæmdir?

Við vitum að framkvæmdir geta virst óyfirstíganlegar í fyrstu og erfitt að vita í hvorn fótinn á að stíga þegar kemur að þeim heima við eða í bústaðnum. Hvort sem það er að taka baðið í gegn, skipta um eldhúsinnréttingu, setja upp fataskápa, byggja við húsið eða jafnvel byggja nýtt hús frá grunni.

Gísli veit góða ráðgjöf t.d. hvort ný eldhúsinnrétting kalli á frekari breytingar, hvort fá þurfi smið, pípara, rafvirkja eða annan fagmann, hversu langan tíma framkvæmdin gæti tekið eða hver mögulegur kostnaður gæti orðið.

Heildstæð Hönnun er framsækið hönnunar- og ráðgjafafyrirtæki sem hefur úr að ráða arkitekta og hönnuði til hverslags bygginga.

Engin verk of stór eða lítil

Tími hjá Gísla kostar 9.995 kr og upphæðin nýtist sem inneign þegar keyptar eru vörur til framkvæmda í BYKO.

Innifalið er 30 mínútna viðtal við Gísla hvort sem er í verslun Breidd eða í fjarfundi í gegnum Teams.

Unnið að framkvæmdum á heimili
Valmynd