Hvað viltu finna hér?

Karfan þín er tóm

Innskráning
Sláðu inn símanúmer
Sláðu inn kennitölu
Umhverfisvæn vara
00000A0172157

GYPROC

VNR. 0172157

Gipsplötur Utanhús

Vindvarnargips fyrir útveggi, ætlað undir loftræsta klæðningu.

• Þykkt 9 mm, breidd 1.200 mm, lengd 2.700 mm
• Öll plötusamskeyti þurfa undirstöðu – uppklossun eða samskeytaprófíl þar sem engin stoð er á bak við
• Samskeyti eru límd með þéttiborða: 100 mm yfir lárétt samskeyti og horn, 60 mm yfir lóðrétt samskeyti
• Skurðkantar, op og göt eru þétt gegn raka strax að uppsetningu lokinni
• Ekkert spartl er notað á samskeyti, aðeins Glasroc X þéttiborði

Platan er vindvörn og á alltaf að vera hulin. Klæðningin má ekki vera svo opin að vatn nái að plötunni, og sé klæðning ekki sett upp strax þarf að verja plötuna til bráðabirgða, til dæmis með plastdúk.

Framleiðandi miðar við að platan þoli allt að sex mánuði óvarin við venjulegar norrænar aðstæður þar sem slagregn er lítið, en samfelld bleyta lengur en fjóra til fimm daga getur valdið myglu og blettum. Slagregn og vindálag stytta þennan tíma, og gögnin miðast ekki við íslenskar aðstæður. Því er ráðlagt að klæða yfir plöturnar eins fljótt og auðið er fremur en að treysta á sex mánuði sem fasta reglu.

Nánari upplýsingar er að finna í fylgiskjölum með vörunni, það er tækniblaði, bæklingi og uppsetningarleiðbeiningum.
Loading

plata

Merki

BREEAM

Valmynd