Hvað viltu finna hér?

Karfan þín er tóm

Innskráning
Sláðu inn símanúmer
Sláðu inn kennitölu
Umhverfisvæn vara
0076186360

Lunawood

VNR. 0076186::360:

Lunawood greni 19x142 burstuð skarklæðning

Lunawood vatnsklæðning – Náttúruleg, endingargóð og viðhaldslétt
Falleg og endingargóð vatnsklæðning frá Lunawood í Finnlandi. Efnið er hitameðhöndlað við 212°C, án nokkurrar efna- eða íblöndunar, sem gerir það að fullkomnu vali fyrir umhverfisvænar byggingarlausnir. Svansvottun tryggir sjálfbæra og vistvæna framleiðslu. Klæðningin er með burstuðu yfirborði sem gefur nútímalegt og náttúrulegt útlit. Klæðningin hentar einstaklega vel fyrir krefjandi íslenskar aðstæður.

Helstu eiginleikar:
• Efni: Hitameðhöndlað timbur, án efna – eingöngu með náttúrulegri hita- og gufumeðhöndlun.
• Yfirborð: Burstað sem gefur áferðarfallegt útlit.
• Stærð: 19 mm þykkt × 142 mm breidd.
• Litur: Verður með tímanum silfurgrár ef ekki er borið á; viðarvörn heldur upphaflega brúna litnum.
• Ending: Áætlaður endingartími er allt að 30 ár.
• Viðhald: Þarfnast lítils viðhalds – engin sérstök meðhöndlun nauðsynleg nema til að halda lit.
• Festing: Með nót sem auðveldar uppsetningu og tryggir nákvæmt samræmi.
• Notkun: Sérstaklega gott fyrir íslenskar aðstæður með miklu álagi af veðri og raka.
Klæðningin er í D-klassa sem þýðir að það hentar til notkunar alls staðar þar sem timbrið er ofanjarðar og þolir úrkomu eins og rigningu eða snjókomu. Eiginleikar klæðningarinnar henta einnig fyrir innanhús notkun.
Loading

Stk

Notkun

Úti

Viðartegund

Greni

Þykkt

19 mm

m2

7,57 m

Breidd

142 mm

Valmynd